Bókakvöld Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags
Rithöfundasamband Íslands, Dyngjuvegur 8, 102 Reykjavík Directions
Thu Nov 26 2026 20:00
Þá er komið að hinu árlega bókakvöldi Sagnfræðingafélags Íslands og Sögufélags. Líkt og síðustu ár verðum við í Gunnarshúsi, Dyngjuvegi 8.
Þetta árið ætlum við að fjalla um fjórar fjölbreyttar bækur.
Flosi Þorgeirsson ræðir við Guðna Th. Jóhannesson um bók hans Vald hinna veiku, annað bindið í ritröð Guðna um þorskastríðin.
Kristín Svava Tómasdóttir ræðir við Önnu Agnarsdóttur sem hefur skrifað bókina Bréfið sem leiddi til byltingar í ritröð Sögufélags Seríu.
Helgi Þorláksson ræðir við Sverri Jakobsson sem sendir frá sér bókina Skattland um stjórnmál á síðmiðöldum.
Ragnhildur Hólmgeirsdóttir ræðir við Guðnýju Hallgrímsdóttir sem fjallar um dulsmál og dauðadóm á 18. öld í bók sinni Dauðadæmd.
Við hvetjum ykkur öll til að mæta.