Jól í Þjóðsögukistunni

Jól í Þjóðsögukistunni

Reykjavík Catherdal, Kirkjustræti, 101 Reykjavík Directions

Sun Dec 06 2026 16:00

Jól í Þjóðsögukistunni

Er mús í orgelinu í Dómkirkjunni? Hvernig voru jólatré í gamla daga? Hringir klukkan jólin inn á réttum tíma?

Jól í Þjóðsögukistunni - hátíðleg sögustund fyrir alla fjölskylduna með lifandi tónlist á aðventu.

Ingibjörg Fríða, söngkona og þáttastjórnandi Þjóðsögukistunnar á RÚV, hefur um árabil miðlað þjóðsögum og ævintýrum til yngri kynslóða við miklar vinsældir. Í þessari lifandi jólaútgáfu Þjóðsögukistunnar verða sagðar jólasögur úr hlaðvarpinu. Með í för eru tónlistarfólkið Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, Sigurður Ingi Einarsson og Valgeir Daði Einarsson, sem ásamt Ingibjörgu, leiða fjölskyldur um króka og kima Dómkirkjunnar með sögum og tónlist. Verkefnið er sérstaklega unnið fyrir Dómkirkjuna á 230 ára afmælisári hennar og verður kirkjan sjálf hluti af sögunni og upplifuninni.

Öll miðasala rennur óskipt til Tómstundasjóðs Rauða krossins, sem veitir börnum flóttafólks á Íslandi tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttu og uppbyggilegu tómstundastarfi, svo sem tónlistarnámi, dansi og íþróttum. Með þátttöku í viðburðinum fá gestir ekki aðeins að njóta einstakrar upplifunar í Dómkirkjunni heldur leggja einnig sitt af mörkum til góðs málefnis.

Viðburðurinn stendur yfir í tæplega klukkustund og fjöldi gesta er takmarkaður.

Miðaverð er í þremur flokkum svo gestir geti valið upphæðina sem þau vilja styrkja.

- 2.500 kr

- 3.000 kr

- 3.500 kr

Athugið að hver seldur miði er aðgangur fyrir einn, barn eða fullorðinn, óháð miðaverði sem valið er.

Því miður er ekki tryggt að gestir í hjólastól geti fylgst með öllum atriðum viðburðarins vegna aðstæðna í Dómkirkjunni.

Viðburðurinn er samstarfsverkefni Ópus Reykjavík og Dómkirkjunnar.

Ópus Reykjavík er ný þverfagleg listasería sem leiðir saman íslenskt og alþjóðlegt listafólk úr fjölbreyttum miðlum. Með tónleikum, sýningum, samtölum, vinnustofum og nýjum verkefnum skapast vettvangur þar sem listafólk getur hist, miðlað hugmyndum og kannað nýjar leiðir til samstarfs. Serían fer fram nokkrum sinnum yfir árið og er lifandi vettvangur fyrir listrænar hugmyndir, fólk og ólíkar nálganir - opinn fyrir tilraunum, samtali og hinu óvænta. Fyrsta útgáfa Ópus Reykjavík, Ópus 1, fer fram í desember 2026.