Lón og Lunch á Jólastúkunni
Vínstúkan Tíu Sopar, Laugavegur 27, 101 Reykjavík Directions
Sun Dec 20 2026 13:00
Lón og Lunch á Jólastúkunni!
Vínstúkan tíu sopar og hljómsveitin Lón & Rakel blása til veislu á Vínstúkunni sunnudaginn 20. Desember kl. 13 með indælum tónum og lúxusmat.
Við ætlum að útbúa þriggja rétta hádegisverð með sjö mismunandi réttum, allt stálheiðarlegan umfaðmandi jólamat (sjá matseðil neðar). Með þessu verðum við svo með vínin sem við erum að flytja inn, og fást hvergi annarsstaðar en hjá okkur, á sérstöku jólatilboði.
Eins og þetta sé nú ekki nóg þá verða vinir okkar í Hljómsveitinni Lón ásamt Rakel, sem einmitt voru að gefa út glænýja jólaplötu, með okkur í þessu og taka lagið á milli rétta og þegar þeim dettur í hug af sinni alkunnu snilld.
ATH! Það eru mjög fá sæti í boði svo það er vissara að bóka strax áður en það selst upp!
Miðaverð er 15.000 á mann og inni í því er innifalið allur þessi matur og auðvitað tónleikar.
Það er því von á extra kósí hádegissstund á vínstúku allra landsmanna.
Bóka borð: https://www.dineout.is/vinstukan?isolation=true
Með kveðju,
Lón og Vínstúkan
Matseðill:
Forréttir:
Rækjukokkteill
Reyktur silungur
Beinmergur og ristað brauð
Aðalréttur
Porchetta
St Johns Salat
Roast Potatoes
Rauðvíns Demi glace
Desert
Bûche de Noël
Jólaglögg + Piparkökur