Undraheimur Þingvalla
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Mon Apr 05 2027 20:00
Á þessu námskeiði deila sérfræðingar úr fimm fræðasviðum dýrmætri innsýn í náttúru, sögu og arfleifð Þingvalla.
Gerðu næstu ferð að Þingvöllum að einstæðri upplifun! Á þessu námskeiði deila sérfræðingar fimm fræðasviða dýrmætri innsýn í náttúru, sögu og arfleifð Þingvalla – helgasta svæði Íslendinga.
Þetta þriggja kvölda námskeið veitir þverfaglega sýn á Þingvelli í gegnum jarðfræði, líffræði, fornleifafræði, stjórnmálasögu og verndunarsjónarmið. Kennslan fer fram með fyrirlestrum frá sérfræðingum sem hafa rannsakað og unnið að verndun svæðisins.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja dýpka skilning sinn á Þingvöllum. Sérstaklega gagnlegt fyrir kennara, leiðsögumenn, starfsfólk menningarstofnana, náttúruverndar og þau sem starfa í ferðaþjónustu. Engar forkröfur.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Helstu jarðmyndanir á Þingvallasvæðinu, jarðskorpufleka og gosbeltaflutninga.
- Lífríki Þingvallavatns, vistkerfi þess og álag á vatnið.
- Löggjöf og regluverk sem verndar Þingvallavatn og vatnasvið þess.
- Sögu Alþingis, Lögbergs og hlutverk lögsögumanns.
- Túlkun þjóðveldisins, lýðveldis og ríkisvalds í sögulegu samhengi.
- Þingvelli sem tákn andófs og minninga, t.d. refsinga og þjóðhátíða.
- Hugmyndir Jóns Sigurðssonar og Tómasar Sæmundssonar um Þingvelli í samtímanum.
- Fornleifarannsóknir frá 19. öld og núverandi skráning í þjóðgarðinum.
- Þjóðgarðsstjórn og helstu verkefni á svæðinu.
- Þingvelli á Heimsminjaskrá UNESCO- þýðingu og áhrif.
Ávinningur þinn:
- Þekking á jarðfræði og vistkerfi Þingvalla.
- Innsýn í stjórnskipulegt og menningarlegt gildi svæðisins.
- Betri skilningur á verndunarmálum og fornleifarannsóknum.
- Dýpri tenging við sögu og sjálfsmynd þjóðarinnar.